
Já það er eins og maður sé komin aftur á steinöld ef maður er ekki með netið, úff.. En allaveganna þá eru við löngu komin heim, alveg að verða komnar 3 vikur síðan. Þetta var rosalega skemtileg ferð og tyrkland allveg ofsalega fallegt land, en tyrkirnir eru aftur á móti annar handleggur. Ég var bara rosalega fegin að koma heim og losna frá því að passa mig á því að horfa ekki inn í neina búðina því þá halda þeir að maður vilji kaup aog hætta ekkert fyrr en þú kauðir einhvað. En allaveganna, við geruð allveg fullt. Leigðum 3 sinnum spíttbát og keyrðum um eyjarnar, fórum í boat trip með icmet, leigðum jetski, við pési fórum svo í fjórhjólaferð sem var geggjað og svo var sleikt sólina..










Þetta eru nokkrar myndir frá ferðinni, ég er búin að setja fleiri í albúmið. Þetta er Tyson, hann er að vinna á sundlaugarbarnum þar sem við vorum, rosa fínn.
Það er samt alltaf rosagott að koma heim aftur, og bara beint í sumarið. Við erum þegar búin að fara í eina útilegu og það var með sigga bró og kollu kæró. Við fórum einhvað langt í burtu á stað sem ég man ekki allveg hvað heitir en það kemur seinna. við fórum bara með þeim á nýja cruisernum þeirra og tjaldvagn. Það var rosalega kósý, fórum í golf á laugardeginum, drukkið smá öl og grillað og svo var setið inní fortjaldi að spila meðan það ringdi á okkur.. Góð byrjun á góðu sumri..




Svo á síðustu helgi var farið vestur á Patreksfjörð með hana ömmu mína. Hún er alltaf yfir veturinn hérna í Reykjavík og fer svo alltef heim yfir sumarið. Hún er svo mögnuð manneskja að orð fá því bara ekki lýst nógu vel. Hún er að verða 82 ára og er svo hraust og hress miða við það að það er allveg ótrúlegt. Mér líður líka svo vel yfir því að vita það að hún er allveg ánægð og getur verið svona ein yfir sumarið, og ég held að henni fynnist það líka. En það hafur alltaf átt að taka aðeins til hendinni þarna hjá henni því bæði að hún býr í yfir 100 ára gömlu húsi sem þarf að fara ditta verulega að og dótið hennar er orðið frekar gamalt og lúið. Svo við nýttum bara tækifærið og fórum með parket, nýja eldavél, nýja hillusamstæðu, sjónvarp, svefnsófa og málningu. Svo var sko tekið til hendinni þegar við komum. Fyrir þá sem vita hvernif húsið hennar er þá tókum við innri herbergið sem er hliðiná eldhúsinu allveg í gegn. Settum parket á gólfið og tókum allt sem var þar inni og settu allt nýtt og það er allveg frábært núna. Svo máluðum við þaða herbergi og alla karmanna og smá í stofunni en við tókum líka til þar. Ég tók allveg helling af myndum en er ekki með myndavélinna eins og er þannig að ég set þær inn seinna. Og það síðasta sem við gerðum hjá henni var að henda grinverkinu sem var fyrir utan hjá henni sem var bara allveg dottið í sundur enda orðið 40 ára gamallt. Við ætlum svo að fara aftur í sumar og setja nýtt grindverk hjá henni.. En það er orðið rosalega fínt hjá henni núna og hún er rosalega ánægð sem er fyrir öllu..
Jæja þetta var svona uppdaitið í bili
bæjó